Enn er hægt að sækja um skólann

Nú fer hver að verða síðastu að skrá sig til leiks, við getum ennþá tekið við nokkrum nemendum í viðbót. Ekki láta þetta frábæra tækifæri framhjá þér fara, Guð er að vinna stórkostlegt verk á landinu okkar og það hefur aldrei verið betri tími en akkúrat núna að vinna í andlegu starfi.  Þeir sem voru á kotmóti vænta þess að sjá flóðgáttir himins opnast yfir landið okkar og að kraftur Guðs flæði.  Jesús skipar okkur að biðja fyrir verkamönnum til starfa í Guðsríkinu, það er ein af fáum bænum sem hann hvetur okkur að biðja fyrir og ekki að ástæðulausu því þegar Guð kallar okkur til starfa þá er einn sem reynir að hindra það, og því þurfum við að biðja fyrir verkamönnum því hindranir eru margar.  Eitt af því sem við höfum haft sem stefnu er að gefa ungu fólki tækifæri á að koma í skólann án þess að vera skuldsett til æviloka vegna náms í MCI, þess vegna eru skólagjöld mjög lág, 65.000.kr á mánuði og inní því er fæði og húsnæði og kenslan, við urðum að hækka verðið í ár vegna þess að matvara hefur hækkað gríðarlega á undanförnum mánuðum, en engu að síður eru nemendur að fá  mikið fyrir  peninginn.  Ef þú veist um einhvern sem hefur þrá til að fara í Biblíuskóla, segðu honum frá MCI og notaðu mátt bænarinnar til þess að hjálpa honum á þá braut því þetta geta verið erfið skref, en eru spurning um líf eða dauða (andlega) hjá sumum.

Bróðurkveðja G.Ólafur Zóph

One Response to Enn er hægt að sækja um skólann

  1. Helga says:

    Flott síða!
    Líst vel á þetta :]

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.