Enn er hægt að sækja um skólann

ágúst 4, 2009

Nú fer hver að verða síðastu að skrá sig til leiks, við getum ennþá tekið við nokkrum nemendum í viðbót. Ekki láta þetta frábæra tækifæri framhjá þér fara, Guð er að vinna stórkostlegt verk á landinu okkar og það hefur aldrei verið betri tími en akkúrat núna að vinna í andlegu starfi.  Þeir sem voru á kotmóti vænta þess að sjá flóðgáttir himins opnast yfir landið okkar og að kraftur Guðs flæði.  Jesús skipar okkur að biðja fyrir verkamönnum til starfa í Guðsríkinu, það er ein af fáum bænum sem hann hvetur okkur að biðja fyrir og ekki að ástæðulausu því þegar Guð kallar okkur til starfa þá er einn sem reynir að hindra það, og því þurfum við að biðja fyrir verkamönnum því hindranir eru margar.  Eitt af því sem við höfum haft sem stefnu er að gefa ungu fólki tækifæri á að koma í skólann án þess að vera skuldsett til æviloka vegna náms í MCI, þess vegna eru skólagjöld mjög lág, 65.000.kr á mánuði og inní því er fæði og húsnæði og kenslan, við urðum að hækka verðið í ár vegna þess að matvara hefur hækkað gríðarlega á undanförnum mánuðum, en engu að síður eru nemendur að fá  mikið fyrir  peninginn.  Ef þú veist um einhvern sem hefur þrá til að fara í Biblíuskóla, segðu honum frá MCI og notaðu mátt bænarinnar til þess að hjálpa honum á þá braut því þetta geta verið erfið skref, en eru spurning um líf eða dauða (andlega) hjá sumum.

Bróðurkveðja G.Ólafur Zóph


Masters Commission Evrópa

júní 14, 2009

BIGmcnameepictures.003.jpgHanna og Nolan eru þegar komin til Belgíu og farin að starfa þar en Dan og Silvana munu hefja störf fljótlega eftir áramót. Þetta er frábært starf sem þegar er farið að skila árangri, samskipti á milli skóla eru betri, sameiginleg heimasíða er gagnvirk og fleiri skólar eru að fara af stað. MC skólinn á Íslandi er einn af leiðandi skólum í þessum samtökum. Í dag er skólinn okkar sá skóli sem hefur skilað mestum árangri í Evrópu og hefur enginn annar skóli verið með svona hátt hlutfall nemenda af innlendum toga, þ.e.a.s ekki nemendur frá Bandaríkjunum og þá er ekki verið að tala um höfðatölu heldu fjölda. Einnig hefur MCI lægsta brottfall nemenda í Evrópu þ.e.a.s nemendur sem hefja nám en hætta svo eftir stuttan tíma.

Við erum að sjálfsögðu afar stolt af okkar nemendum og höfum mikla trú á því að þetta eigi eftir að hafa víðtækari áhrif í framtíðinni fyrir okkar land og jafnvel meiri en við gerum okkur grein fyrir nú þegar. Biðjum fyrir MCE og skoðum heimasíðuna og sjáum hvaða skólar eru nú þegar starfræktir.

Við biðjum Guð að blessa þig og þakka þér fyrir stuðning þinn til MCI. Það er mjög mikilvægt að við stöndum saman og eflum þekkingu á orði Guðs.


Könnun

júní 14, 2009

Hrikaleg pæling

júní 13, 2009

Það er margt sem er að gerast í þessum heimi, og akkúrat þessa stundina, efnahagurinn hruninn í landinu og Óli Z er farinn að blogga, ekki veit hvað þetta endist en það gæti orðið meira en eitt vers út úr þessu.. Allaveg þá er ég bara að kíkja á þetta Word Press dæmi..


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.